Vending
Halló ! Mig langar að vita hvort "vending" sé skaðleg eða á einhvern hátt varasöm fyrir barnið. Ég stend frammi fyrir þessari ákvörðun að reyna vendingu eða ákveða keisara og er ekki tilbúin að taka neina óþarfa áhættu með krílið. Er komin 37 vikur. Með þökk fyrir fróðlegan vef, Sigga.
.................................................................................
Halló Sigga og takk fyrir fyrirspurnina.
Það er skiljanlegt að þú viljir ekki taka neina áhættu með barnið þitt en mundu að öllu fylgir einhver áhætta, fæðingu og keisaraskurði líka.
Í vendingu er eins og þú veist verið að reyna að snúa barninu þannig að höfuðið snúi niður en ekki rassinn eins og barnið þitt er núna. Þetta gera einungis færir fæðingalæknar auk þess sem hlustað er á hjartslátt barnsins og líðan þess metin á meðan á þessu stendur og á eftir líka til að fullvissa alla um að allt sé í lagi. Þú þarft að tæma þvagblöðruna og þér eru gefin lyf til að slaka á leginu. Hugsanlega líður þér illa af lyfinu, finnur fyrir auknum hjartslætti, svita og jafnvel mæði en það er ekki hættulegt fyrir þig eða barnið. Borin er olía á kviðin og læknirinn reynir að snúa barninu utan frá. Þetta getur verið svolítið óþægilegt fyrir þig en á ekki að vera sársaukafullt. Ef þú ert í Rh- blóðflokki færðu sprautu á eftir vegna hugsanlegrar blóðblöndunar milli þín og barnsins. Vending heppnast í um 50-75% tilfella.
Vandamál eru hugsanleg en sjaldgæf. Þau eru að það komi hnútur á naflastrenginn. Ef þetta gerist ætti það að heyrast á hjartslætti barnsins sem myndi þá hægja verulega á sér. Ef þetta gerist og lagast ekki eru strax gerðar ráðstafanir til að koma barninu í heiminn t.d. með keisaraskurði.
Hugsanlega geta belgirnir rifnað eða fylgjan rifnað frá leginu, en þá heyrist það líka á hjartslætti barnsins. Hugsanlega finnur þú þá líka fyrir blæðingu um leggöngin.
Eins og ég kom inn á áðan þá er fyllsta öryggis gætt þegar gerð er vending til að koma í veg fyrir vandamál eins og þessi og þau eru sem betur fer mjög sjaldgæf. Ýmis vandamál geta líka fylgt keisaraskurði og þú ættir að tala við lækninn þinn um kosti og galla vendingar og keisaraskurðar. Eðlileg fæðing er náttúrulega alltaf best bæði fyrir barn og móður og með því að fara í vendingu færð þú möguleika til að fæða á eðlilegan hátt. Mundu bara að í langflestum tilfellum koma börnin hraust og eðlileg í heiminn hvort sem er eftir fæðingu um leggöng eða með keisaraskurði. Reyndu að hafa ekki of miklar áhyggjur og vera jákvæð hvað svo sem þú ákveður.
Gangi þér vel.
Rannveig B. Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. 09.07.2004.
Til baka
|