Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. nóvember 2014
Góðan dag!
Ég á 5 mánaða barn sem er eingöngu á brjósti. Það hefur gengið vel. Barnið þyngist vel og er vært. Ég mjólka mikið og hef verið að velta fyrir mér hvort einhver ávinningur væri af því fyrir 4 ára barnið mitt að fá brjóstamjólk að drekka (úr glasi)? Sá 4 ára er hraustur og með gott ónæmiskerfi. En gæti brjóstamjólk á þessum aldri hjálpað honum að styrkja kerfið sitt enn frekar?
Sæl og blessuð!
Það er ekkert sem mælir gegn því að gefa 4ra ára barni brjóstamjólk og það myndi eflaust styrkja hann frekar. Þú þarft heldur ekki að hafa áhyggjur af að þú sért að taka eitthvað frá yngra barninu því það framleiðist bara mjólk til viðbótar. Það er þekkt að gefa mjög veikum einstaklingum, jafnvel þótt fullorðnir séu brjóstamjólk til að styrkja varnir þeirra svo þetta er góð hugmynd.
Með bestu óskum.Katrín Edda Magnúsdóttir,ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi,5. október 2014.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.