Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
20. janúar 2015
Var að komast að því að ég er ófrísk ;), verð 39 ára i mars. Fyrsti dagur síðustu blæðinga hjá mér var 9. Desember. Ég er að hugsa hvaða einkenni á maður að finna, held ég sé gengin 5 vikur núna. Ég finn ekki ógleði, smá togverki, á maður að finna lítið?, Ég er stressuð því ég hef eignast einu sinni andvana barn, missti komin þá 22 vikur.Við eigum einn strák sem er fæddur 2010 og þá var ég í áhættumeðgöngu og gekk alveg 2 vikur framyfir. Er það vaninn líka með barn númer 2. Takk fyrir góða síðu kveðja Hildur
Heil og sæl Hildur og til hamingju, þú ert þá komin 6 vikur. Það eru alls ekki allar konur sem fá meðgöngueinkenni og ef þau koma þá fara þau að koma núna uppúr 6 vikum. Algengustu einkennin eru líkast til ógleði, brjóstspenna/eymsli og þreyta. Meðgöngueinkenni leggjast líka misþungt á konur. Þú verður vonandi svo heppin að vera ein af þeim sem fá frekar lítil eða engin einkenni. Það er skiljanlegt að þú sért stressuð eftir þá erfiðleika sem þú ert búin að ganga í gegnum en síðasta meðganga hefur væntanlega gengið vel fyrst þú gekkst með í 42 vikur og það er kannski ekki vaninn en alls ekki ólíklegt að þú gangir með í 42 vikur núna líka. Gangi þér vel.
bestu kveðjurÁslaug Valsdóttirljósmóðir og hjúkrunarfræðingur20. jan. 2015
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.