Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
23. febrúar 2015
Hæ hæ, ég er búin að vera í algjöru stressi síðustu vikurnar. Ég hafði samfarir í lok desember og tók neyðarpilluna degi síðar. Ég fór svo í 4 tíma flug til útlanda í byrjun janúar og byrjaði svo á túr degi eftir að ég lendi semsagt 5 janúar, en á alltaf að vera á túr 20-22 hvers mánaðar. Stressið núna er það að ég hef ekki byrjað á túr ennþá nú! Gæti þetta verið áhrif frá fluginu og neyðarpillunni að rugla þessu öllu saman? Eða þungun? Kveðja ein stressuð.
Sæl ein stressuð, stundum kemst ójafnvægi á hormónastarfsemina og streita, ferðalög og pillan geta alveg spilað inn í það. Mér þykir frekar ólíklegt að þú sért þunguð en hvet þig til að gera þungunarpróf svo að þú getir útilokað það og gangir ekki með ástæðulausar áhyggjur. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.