Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
28. apríl 2015
Sælar, og takk fyrir góða og nauðsynlega síðu! Ég er komin rúmar 12 vikur og hef núna tvisvar lent í því að fá blóð í pappírinn, fyrst fyrir viku síðan og svo í gær. Í bæði skiptin var þetta ferskt blóð, eins og úr sári, og pínulítið magn (kom bara einu sinni í hvort sinn). Ég sá ekki blóð í hægðum og fann ekki fyrir því í leggöngunum. Ég er búin að fara í 12 vikna sónar og allt leit vel út, og mæðraverndin sagði að lítið væri hægt að gera í blæðingum svona snemma á meðgöngunni. Ég er búin að vera með þó nokkuð harðlífi og mjög viðkvæm í slímhúðinni. Mínar spurningar eru því þessar, hvaðan gæti þetta blóð komið, get ég gert eitthvað til að koma í veg fyrir þetta og þarf ég að hafa áhyggjur?
Heil og sæl, nei þú getur ekki gert neitt til að koma í veg fyrir þetta og það er eins og þær segja í mæðraverndinni ekkert hægt að gera í þessu. Þetta blóð er væntanlega frá slímhúð, hún er viðkvæm og þarf lítið kannski ekki nema smásár sem ekki sést með berum augum einu sinni til að það komi smá blóð. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.