Fæðingarstellingar

Á útvíkkunartímabilinu getur upprétt staða hjálpað til við útvíkkun leghálsins og að barnið komi neðar í grindina og getur þannig stytt útvíkkunartímabilið. Gott er fyrir konur að vera sem mest hreyfanlegar í fæðingunni það hjálpar til við að finna bestu stellinguna hverju sinni. Mörgum finnst gott að skipta um stellingar þar sem það getur verið þreytandi að vera alltaf í sömu stellingunni.

Konan ætti að finna stellingar sem henni finnst þægilegar t.d.

  • á fjórum fótum, getur létt á bakverkjum og hjálpar til við snúning barnsins.
  • að labba um.
  • standa og vagga sér í mjöðmunum, hjálpar líka til við snúning barnsins.
  • vera á hækjum sér.
  • sitja öfugt á stól og halla sér að bakinu eða að stuðningsaðilanum.
  • á fjórum fótum.
  • liggjandi á hlið, gott að hafa kodda milli fóta og undir kúlunni.
  • hálfsitjandi.

Á rembingsstiginu ætti konan líka að vera í þeirri stellingu sem henni finnst þægilegust:

  • hálfsitjandi í rúminu þar sem hún hefur hátt undir bakinu og getur hallað sér aftur.
  • liggjandi á hlið og getur þá stuðningsaðilinn hjálpað til við að lyfta fætinum í hríðunum til að gefa barninu sem mest pláss. Þessi stelling virkar oft vel hjá konum sem eru slæmar í grindinni.
  • á fjórum fótum og halla sér upp að grjónapúða eða stuðningsaðilanum, góð stelling ef konan er slæm í grindinni eða bakinu því þessi hún hvílir bakið. Þessi stelling hjálpar líka til við snúning barnsins.
  • á hækjum sér, en það getur aukið grindarútgangsmálin um 2 cm. Hún þarf þá hjálp til að halda sér uppi og t.d. getur stuðningsaðilinn setið á stól fyrir aftan hana og hún hangir þá á lærunum á honum.
  • á fæðingarstól gerir konunni kleift að vera í uppréttri stöðu og líkir eftir stöðunni að vera á hækjum sér. Ekki ætti að nota hann mjög lengi í einu vegna aukins bjúgs og æðahnúta í spönginni.
  • standandi, nýtir þyngdaraflið og getur hreyft mjaðmirnar.

Að breyta um stellingar getur flýtt fyrir fæðingunni og hjálpað konunni sem verður oft þreytt á að vera lengi í sömu stellingu.

Valmynd