Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
19. desember 2004
Góðan daginn.
Ég heyrði einhvers staðar að maður ætti ekki að borða hangikjöt á meðgöngu. Er eitthvað til í því?
Með kveðju og þökkum fyrir góðan vef.
Sæl og takk fyrir að senda okkur fyrirspurn.
Við leituðum til Jóhönnu Eyrúnar Torfadóttir sem er matvæla- og næringarfræðingur á matvælasviði Umhverfisstofnunar og sendi hún eftirfarandi upplýsingar:
Það er óhætt að borða hangikjöt en þó mætti hafa efirfarandi í huga: Hangikjöt inniheldur mikið salt eða tæplega 1,5 gramm í 100 grömmum og barnshafandi konur með háan blóðþrýsting ættu því að stilla magninu í algert hóf svona yfir hátíðarnar en reyna bara í staðin að borða meira af meðlæti það er kartöflum, grænum baunum og þess háttar. Almennt mega þó allir hafa í huga að hangikjöt er mjög saltríkt og því mikilvægt borða hóflega af því. Eins skiptir máli að þegar hangikjöt er soðið að kjarnhiti nái 75 °C og að það sé síðan kælt fljótt og vel að suðu lokinni. Þetta þýðir að kjötið á að vera geymt við 4°C eða lægra hitastig þegar tekið úr pottinum eftir suðu (Kjarnahitastig á að ná 7°C á innan við 4 klst eftir suðu). Munið líka að geyma alla afganga í kæli (á við um alla kælivöru og soðið kjöt).
Það er óhætt að borða hangikjöt en þó mætti hafa efirfarandi í huga: Hangikjöt inniheldur mikið salt eða tæplega 1,5 gramm í 100 grömmum og barnshafandi konur með háan blóðþrýsting ættu því að stilla magninu í algert hóf svona yfir hátíðarnar en reyna bara í staðin að borða meira af meðlæti það er kartöflum, grænum baunum og þess háttar. Almennt mega þó allir hafa í huga að hangikjöt er mjög saltríkt og því mikilvægt borða hóflega af því.
Eins skiptir máli að þegar hangikjöt er soðið að kjarnhiti nái 75 °C og að það sé síðan kælt fljótt og vel að suðu lokinni. Þetta þýðir að kjötið á að vera geymt við 4°C eða lægra hitastig þegar tekið úr pottinum eftir suðu (Kjarnahitastig á að ná 7°C á innan við 4 klst eftir suðu). Munið líka að geyma alla afganga í kæli (á við um alla kælivöru og soðið kjöt).
Það ætti því að vera óhætt að fá sér hangikjöt um hátíðarnar.
Með kærri kveðju og óskum um gleðileg jól, Anna Sigríður Vernharðsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.Yfirfarið í júní 2020
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.