Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
25. júní 2016
Hæ hæ. Ég er komin 11 vikur og lenti í því í fyrradag að borða mjög hráan hamborgara. Var svo svöng að ég tók ekki eftir því að hann væri hrár fyrr en ég var að verða búin með hann. Nú er ég að fara á taugum yfir þessu. Búin að vera hálf skrítin í maganum síðan, svona bumbult. Kannski er það hausinn á mér. Er eitthvað sem ég get gert til að minnka líkurnar á að þetta gæti haft áhrif á fóstrið?
Heil og sæl, í einstaka tilfellum getur maður fengið bakteríu sem er ekki góð fyrir fóstrið af hráu kjöti og það er ekki mælt með því að borða hrátt og/eða illa steikt kjöt á meðgöngu. Það er samt ekkert sem þú getur gert eftir að þú hefur borðað þetta. Það eru ekki tengsl milli þess að vera bumbult og skaðsemi við fóstrið svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því. Ég tek fram að LANG oftast er allt í lagi að þó að ófrískar konur borði illa steiktan hamborgara þó að við ráðum frá því að gera það á meðgöngu. Þó að baktería hafi fundist í hráu kjöti er hún ekki nærri því í öllu hráu kjöti. Þú skalt því halda ró þinni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.