Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
25. júní 2016
Hæ, ég var að velta fyrir mér hvort það sé eðlilegt að ég sé ekki buin að finna neitt fyrir baðinu mínu! :( er komin 21v með mitt fyrsta barn og eg hef rosa miklar áhyggjur að ég sé ekki ennþá farin að Finna hreyfingar. Ég fer í 20v sónar eftir nokkra daga en eg get bara ekki beðið svo lengi með að vita hvort það sé allt í lagi með litla krílið mitt :(
Heil og sæl, það er mjög mismunandi hvenær konur fara að finna hreyfingar og þó að það sé frekar seint að vera ekki farin að finna við 21 viku þá er það samt ekki einsdæmi. Það er mjög ólíklegt að eitthvað sé að á þessum tíma í meðgöngunni þó að það sé auðvitað ekki alveg útilokað. Ef þú ert ekki farin að finna hreyfingar núna um helgina og treystir þér ekki til að bíða eftir sónar ráðlegg ég þér að tala við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni og sjá hvort hún hefur tök á að leyfa þér að koma í hlustun. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.