Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
18. júlí 2016
Sæl, nú er ég búin að vera ofboðslega veik með hálsbólgu,kvef,hita og beinverki og var að velta því fyrir mér hversu mikið af paratabs td ég mætti taka yfir dagin og hvort þú ættir eitthver ráð fyrir mig hvernig best væri að koma mér á gott ról.. Ég er komin um 15-16 vikur eins og er, var einnig að hugsa hvort það sé eðlilegt að vera með engin einkenni og eitthvernvegin líða eins og mér fyndist ekkert vera að ske inn í mér þar sem maginn varla stækkar, þessi tími er svo stressandi! Fyrirfram þakkir
Heil og sæl, já það er alveg eðlilegt að finnast ekkert vera að ske inni í þér. Þegar þú ferð að finna hreyfingar þá verður þetta allt öðruvísi og þá ertu komin í beint samband við barnið. Við pest er í lagi að taka panódil/paratabs og það má taka 4 sinnum á sólarhring. Ef að ein tafla dugar þá er það best en ef þú ert alveg að drepast er í lagi að taka tvær. Vonandi nærðu pestinni úr þér sem fyrst. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.