Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
21. júlí 2016
Hæhæ, stelpan mín er 4 vikna og eg þarf að vita hvort það er i lagi þegar eg skrepp fra a nóttinni hvort það er í lagi að gefa henni þurrmjólk? Það eru bara 3 nætur sem hun þarf að vera i pössun, bara upp a það ef hun vaknar og þarf að drekka. Mig gegnur nefnilega ekki vel að pumpa og finnst það eiginlega bara óþægilegt. Ef svo er, hvaða þurrmjólk er best ? Fyrirfram þakkir
Heil og sæl, jú það er allt í lagi að bjarga sér á þurrmjólk þegar ekki er hægt að gefa brjóst af einhverjum ástæðum. Varðandi þurrmjólkina þá er mismunandi hvað hentar fólki og best að lesa utan á. Annars tel ég að tegundir á markaði hér séu frekar áþekkar. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.