Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
24. september 2016
Stelpan mín er 2,5 mánaða og hefur verið að sofna út frá brjóstinu. Hún sofnar/dottar oft á brjósti þegar hún er að drekka og á kvöldin getur hún stundum hangið á mér í fleiri klukkutíma. Sem dæmi um daginn var hún að drekka og sofnaði svo ég klæddi hana í náttfötin og ætlaði að leggja hana inn í rúm en þá var hún bara í fullu fjöri og eftir einhverja stund varð hún pirruð svo það endaði á því að ég gaf henni að drekka svo hún myndi sofna (og ég gæti líka farið að sofa). Í annað skipti var hún að sofna þegar ég gaf henni svo ég fór inn í rúm og gaf henni liggjandi en þá endaði hún á að drekka, dotta og hanga á mér í örugglega 2 klst þangað til hún sofnaði. Hún hefur ekki tekið snuð. Eru þið með einhver ráð til að hún sofni öðruvísi en alltaf á brjóstinu? Við erum að fara að sofa milli 23- 24 og sofa fram til 11-12 með drykkjarhléum. Ég væri líka alveg til í að hún sofnaði fyrr en þegar ég hef prófað þá hefur hún bara drukkið og "hangið" á mér til ca 23/24 þar til hún sofnar. Ef það breytir einhverju þá sefur hún oft úti í vagninum á daginn í ca 3 klst en ef hún fer ekki í vagninn sefur hún ekki eins lengi.
Heil og sæl, það er oft ansi snúið þetta með svefn ungbarna. Bendi hér á smá grein um svefn, vona að það hjálpi eitthvað. Gangi ykkur vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.