Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
16. október 2016
Hæhæ og takk fyrir frábæran vef. En þannig ég mál með vexti að ég deili íbúð með pari sem reykir maríjúana, ég er komin 10 vikur á leið og er aldrei í kringum þau þegar þau reykja en lyktin kemur inni herbergi til mín þó svo að hurðin sé lokuð. Ég fæ stundum magaverk og hausverk ef lyktin er of sterk en getur bara það að finna lyktina haft áhrif á fóstrið?
Heil og sæl, já það er ekki heppilegt að anda að sér reyk af neinu tagi á meðgöngu og ef þú finnur fyrir óþægindum sjálf af þessu þá er talsvert sem kemur til þín af efninu. Ég ráðlegg þér að reyna finna leið með sambýlisfólki þínu svo að þetta trufli þig ekki og þú verðir ekki fyrir áhrifum. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.