Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
19. janúar 2017
Er eitthvað sem ég þarf að hafa í huga þegar kemur að því að fljúga með ungabarn? Nú er maðurinn minn er frá Englandi og því langar okkur að fara sem fyrst og þegar öllum heilast vel eftir fæðinguna til Englands. Þarf barnið að vera komið yfir eitthverja vissa þyngd til að mega fara í flug og má fara með barn sem er um það bið mánaða gamalt í flug. Gæti það haft áhrif á ónæmiskerfið eða eitthvað þess háttar. Einnig væri ekki best fyrir barnið að vera að drekka úr bjóstinu við flugtak og lendingu? Gæti það ekki hjálpa við þrýstingin, fyrir t.d. litlu eyrun? Takk fyrir frábæran vef, hann hefur reynst mér mjög vel á meðgöngunni.
Komdu sæl og blessuð, það fer svolítið eftir barninu hversu auðvelt er að ferðast með það. Yfirleitt gengur allt vel og margir fara með mjög ung börn milli landa, einnig konur utan af landi sem fæða í Reykjavík þurfa oft að fljúga með nýfædd börn. Það getur verið ágætt að hafa barnið á brjósti í flugtaki og lendingu en hugsanlega þarf það ekki. Þú finnur það strax á barninu. Það eru í raun engar sérstakar ráðstafanir sem þú þarft að hafa í huga. Gangi ykkur vel og góða ferð.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.