Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
22. janúar 2017
Sæl ljósmóðir og takk fyrir frábæran vef. Nú er eg gengin með 35 vikur með barn nr 2. Eiginlega alla meðgönguna er ég búin að vera ansi "þreytt" í neðri hluta líkamans. Frá rassi og niður. Hægt að segja að eg missi tilfinninguna í neðrihlutanum. Finnst oft erfitt ad stíga skrefin. Hvað gerur þetta verið? Man ekki eftir þessu á fyrri meðgöngu. Þetta er ad ágerast rosalega núna eftir þvi sem líður á. Eg fekk mænudeyfingu í fæðingunni, getur þetta verið einkenni frá því?
Heil og sæl, ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á þessu. Ég hef ekki heyrt um þessar aukaverkanir af mænurótardeyfingu og efast um að henni sé um að kenna. Mér dettur einna helst í hug að barnið þrýsti á taugar eða eitthvað slíkt. Ég ráðlegg þér ef þú ert ekki þegar búin að því að ræða málið við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.