Spurt og svarað

20. febrúar 2017

Veikindi móður

Ég á 6 vikna gamalt barn og ég er búin að vera hálf slöpp í 2 daga með hálsbólgu og hósta, þarf ég að hafa eh áhyggjur útaf honum að hann smitist ?

Heil og sæl, jú hann getur smitasta af þér. Þú skalt þvo hendur mjög vel áður en þú sinnir honum og eins að reyna að hósta ekki eða anda beint á hann. Annars getur verið mjög erfitt að forðast smit þegar umönnunaraðili er veikur. Gangi þér vel. 

Senda fyrirspurn
Allir reitir verða að vera fylltir útSenda
Fyrirspurnin þín hefur verið send.
Fannstu ekki svar?

Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.

Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.

Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.