Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
21. febrúar 2017
Hæhæ takk fyrir góðan vef. Mig langaði til að forvitnast hvort það er eitthvað að marka nabba kenninguna (nub theory) úr myndum frá 12-13 vikna sónar til að meta hvort kynið er.
Heil og sæl, nei ég held að það sé nú ekki mikið að marka þetta. Þetta er meira til gamans gert og engar vísindalegar sannanir benda til þess að þetta sé marktækt en þetta gefur kannski ákveðna vísbendingu. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.