Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
22. febrúar 2017
Hæhæ er gengin 22 vikur og var að lenda i því nuna að bumban harðnar allt i einu verkjalaust svo eg gef mer að það séu samdrættir en eg var að vinna áðan og bumban var hörð alla vaktina sem er 4 og hálfur tími og seinni hluta vaktarinnar var mer illt eða eins og eg væri með einhverjar massa harðsperrur.. er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af?
Sæl og blessuð, hörð bumba er merki um samdrætti en ef engir verkir fylgja er ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur ég ráðlegg þér samt að ræða málið við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.