Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. apríl 2017
Sælar ljósmæður Ég er með 7 vikna gamalt barn á brjósti og alla þessa viku er eg buin að vera drepast í bakinu og langar svo að bera a mig deep heat. Er það óhætt þar sem eg með barnið a brjósti?
Heil og sæl, við vitum til þess að það hafi verið notað. Hinsvegar kemur fram hjá framleiðanda að þeir ráðleggi að haft sé samband við lækni áður en efnið er notað. Oft er það vegna þess að engar rannsóknir eru til um áhrif efninsins á konur á meðgöngu og við brjóstagjöf. Við tökum því í sama streng og framleiðandi, það borgar sig að hafa varann á og ráðfæra sig við lækni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.