Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
19. apríl 2017
Góðan daginn og takk fyrir frábærann vef!! Mig langar að spyrja eina spurningu, hún er kannski mjög vitlaus, en ég kemst ekki að því nema að spyrja :) Ég er komin 7 vikur á leið og er gjörsamlega orkulaus allan daginn, ég sef samt eins mikið og ég get og borða næringarríkan og hollan mat. Má drekka smá af Amino Energy á meðgöngu? Nú drekk ég ekki kaffi, en drakk stundum Amino eða te ef mig vantaði smá boost. Nú veit ég að óléttar konur drekka stundum einstaka kaffibolla sem á að vera í lagi, gildir það sama um Amino drykkinn? Hér má sjá upplýsingar um drykkinn ef þið þekkið hann ekki nú þegar: https://www.heimkaup.is/Amino-Energy og http://protin.is/products/9971-amin-o-energy-30-skammtar Ef þetta er á bannlistanum, hverju mælið þið þá með til þess að fá örlítið auka boost? :) takk takk kveðja þessi þreytta
Heil og sæl, nei það er ekki mælt með notkun amino energy á meðgöngunni. Mig minnir að það sé meira að segja viðvörun á dósinni. Ég skil vel að þú sért orkulaus, það er mikil starfssemi sem á sér stað inni í þér, heil mannvera er að verða til. Það er mjög eðlilegt að konur séu mjög þreyttar fyrstu vikur meðgöngunnar en flestar eru farnar að hressast verulega um 12 vikur. Þessi tími tekur því enda fljótlega. Það er ekki mikið meira sem þú getur gert en að borða hollan mat, hvíla þig og sofa vel þar sem þreytan orsakast af hormónum sem tilheyra meðgöngunni. Mundu bara að þetta er eðlilegt og tekur enda. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.