Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
22. maí 2017
Sælar og takk fyrir frábæran vef :) Nú var ég á leiðinni í helgarferð til Ítalíu seinna á árinu og búið er að panta ferðina en svo kom það upp að ég er ófrísk og verð komin 35+6 þegar flogið er út og 36+3 þegar flogið er heim. Ég á tvær meðgöngur að baki og gekk 38+ og 40+, auk þess flaug ég í fyrra skiptið komin bæði 9v og 25v og var það alveg áfallalaust. Því spyr ég, ef flugfélögin sættast á við þetta og meðgangan er heilbrigð þangað til, væri mælt á móti þessu? Þá vegna þess að maður á einungis fjórar settar vikur eftir ? Þetta eru tvö flug sem eru ca 3 tímar hvort, hvora leið.
Heil og sæl, það er aðallega flugfélögin sem setja sum hver þær reglur að fljúga ekki með konur eftir 36 vikur. Þú þarft því fyrst og fremst að hafa samband við flugfélagið. Ef þú ert hraust og allt er gott í meðgöngunni er í lagi að ferðast ef þú viðhefur ákveðnar varúðraráðstafandir sem þú getur rætt um við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni ef að flugfélagið gefur grænt ljós. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.