Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
18. júní 2017
Hæ Er eðlilegt að hafa harðlífi í nokkra daga og fá svo niðurgang og svo harðlífi aftur næsta dag? Og að þetta gangi bara svona? Ég er ekki með neinar venjulegar hægðir. Alltaf bara harðlífi og ekkert gerist svo allt í einu niðurgangur og svona gengur þetta í hringi. Eg er að taka magnisum medic en áður en ég byrjaði að taka það inn þá var ég ekki með hægðir í allt að viku svo þetta hjálpar alveg. Ég veit að þetta er ekki tengt mataræði. Hvað ætli þetta sé og er hægt að laga þetta?
Heil og sæl, mig grunar að þú sért stífluð og sért með það sem kallað er framhjáhlaup og lýsir sér eins og niðurgangur. Ég ráðlegg þér að ráðfæra þig við heimilsilækni til að fá ráðleggingar við þessu. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.