Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. ágúst 2017
Hæhæ. Ég er komin sirka 37 vikur og hef verið að berjast pínu við svefninn síðustu vikurnar sem að mér sagt sé eðlilegt svona á endasprettinum. En það sem ég er að pæla í eru stellingarnar sem eru í boði. Að liggja á bakinu og maganum er alveg útilokað núna það þrýstir of mikið á alla kanta og barnið. En svo las ég um að það væri ekki æskilegt að sofa á hægri hliðinni því eitthvað af líffærum hjá móður liggja á þeirri hlið..ég hef mest sofið á vinstri en finnst voða gott að snúa mér i hina áttina líka. Svo spurningin er, er það hættulegt eða eitthvað álíka að sofa á hægri, getur eitthvað komið fyrir mig eða barnið? Kveðja
Heil og sæl, nei ef þér líður vel á hægri hlið þá liggur þú á henni. Líkaminn segir þér ef einhver líffæri eru aðþrengd þá finnur þú fyrir því og getur snúið þér. Þú getur legið alveg eins og þér finnst best meðan þér líður vel. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.