Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
16. ágúst 2017
Sælar, Litla stelpan mín er allt í einu farin að hósta einstaka sinnum og virðist sem svo sð hún eigi erfitt með útöndun annað slagið, þarf ég að láta skoða hana? Hún þyngist enn og virðist líða ágætlega
Heil og sæl, hún gæti hugsanlega verið með bakflæði en annars eiga lítil börn helst ekki að hósta þó þau geti hnerrað talsvert. Ég ráðlegg þér að ræða málið annaðhvort við ungbarnaverndina ef þú átt von á vitjun eða þá fara með hana til heimilislæknis. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.