Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
16. ágúst 2017
Ég er komin 24vikur og er að fá verki neðst í bumbuna. Hefur aukist síðustu daga. Finn minna fyrir þessu ef ég ligg eða sit og geri ekkert. Ég er ólétt af fyrsta barni og þekki þetta ekki. Hef smá áhyggjur þar sem ég hef misst tvisvar en aldrei náð lengra en 9 viku.
Heil og sæl, verkir neðst í bumbu hljóma ekki eins og samdrættir svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því. Þetta geta hugsanlega verið grindarverkir að framan út frá lífbeini. Annars er erfitt að segja nokkuð til um þetta með vissu án þess að skoða þig, en þetta hljómar ekki eins og neitt alvarlegt. Þú getur ef þér finnst þetta trufla þig haft samband við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni og rætt málið við hana. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.