Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. október 2017
Góðan daginn, Nú er ég ófrísk komin 33 vikur. Nánast frá upphafi eða fyrir 12 vikurnar hef ég upplifað mikla samdrætti og þá sérstaklega eftir kynlíf, sem ég veit að er svo sem eðlilegt. Hinsvegar frá uþb viku 20 hef ég upplifað mikla verki við kynlíf. Mér hefur liðið eins og ég sé með rosalega miklar harðsperrur í leginu en stundum virðast þetta bara vera eins og togverkir um alla bumbu. Þeir standa sterkir yfir í alveg 1-3 mínútur, minnka svo og verða að þessum "venjulegu" togverkjum en eru stundum alveg alla nóttina og ég finn ennþá leifar af verkjum í allt að sólarhring. Þetta eru verkir sem ég þarf að reyna anda mig í gegnum og eru því mjög sárir. Ég upplifði þetta ekki á hinum meðgöngunum mínum, bara smávægilega samdrætti. Er þetta eðlilegt og einhver ástæða fyrir þessu? Eða er málið bara að hætta þessu?
Heil og sæl, mér finnst ekki eðlilegt að þú skulir hafa svo slæma verki að þú finnir fyrir þeim í sólarhring og þurfir að anda þig í gegn um þá. Ég ráðlegg þér að ræða málið við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.