Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
17. febrúar 2018
Hæ ég er mikið bjúgmeiri á annari löppini, er það ekki eðlilegt eða er þetta blóðtappi. Er gengin 31v. Og alltaf mælst góð í blóðþrýstingi og öðrum blóðmælingum nema á mörkum blóðleysis nú síðast..
Heil og sæl, það er ekki óalgengt að hafa mismikinn bjúg á fótum. Blóðtappi gefur yfirleitt meiri einkenni svo sem eins og verki, misjafnan lit milli fóta og eða kaldan fót. Þú getur rætt þetta við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni næst þegar þið hittist eða fyrr ef þú versnar. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.