Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. mars 2018
Sælar, ég er að verða komin 23vikur og er farin að finna verk alltaf þegar ég vakna, í bumbunni neðarlega og þá mest hægra meginn en einnig smá vinstra megin. Þannig að það er oþægilegt að snúa sér. Eru þetta bara svona rosalega slæmir togverkir eða eitthvað annað? Ég sef alltaf á hliðunum og verkurinn minnkar ef ég skipti um hlið, þannig eg er endalaust að snúa mér á nóttunni.
Heil og sæl, mér finnst nú líklegast að þetta séu togverkir. Þetta hljómar alls ekki alvarlega. Næst þegar þú ferð í skoðun skaltu ræða þetta við ljósmóðurina þína ef þú finnur ennþá fyrir þessu. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.