Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
14. maí 2018
Hæhæ! Ég fer vanalega á mjög miklar blæðingar og vara þær frá amk 5 upp í 7/8 daga. Er á frekar óreglulegum blæðingum en undanfarna mánuði byrja ég einhvertíman á bilinu frá 17. hvers mánaðar til ca 5 hvers mánaðar. Ég var á blæðingum eitthvað um 24.mars (man ekki nkl hvenær þær byrjuðu) og svo stundaði ég óvarið kynlíf 18.apríl. Ég byrjaði svo á túr 26.apríl en blæðingarnar voru mun styttri og minni en vanalega (2 dagar) Ég tók samt ekki eftir því að liturinn væri öðruvísi og þó að þetta væru litlar blæðingar þá voru þær samt meiri en það sem ég hef lesið mér til um hreiðurblæðingar. Undanfarna daga hefur mér svo verkjað þvílíkt í brjóstin og finnst eins og þau hafi stækkað alveg slatta, og þau eru mjög stinn. Ég tók óléttupróf áðan og það kom neikvætt. Nú langar mér að spyrja hvort að það þessar blæðingar höfðu mögulega getað verið hreiðurblæðingar þó svo að blóðið hafi verið ferskt (að mig minnir) og þær vörðu í 2 daga? Bestu kveðjur og fyrirfram þakkir
Heil og sæl, nei mér þykir afar ólíklegt að það hafi verið sérstaklega í ljósi þess að þungunarpróf er neikvætt. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.