Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
22. júní 2018
Góðan dag. Núna hef ég verið að upplifað verki sem koma eins og sláttur neðarlega í baki og þeir koma og fara. Alltaf ef ég er í hvíld. Er komin 37+5 vikur og spurt tvær ljósmæður sem gátu ekki gefið mér svör. Fæ ekki samdrætti með þessum verkjum. Þeir eru bærilegir en bara mjög óþæginlegir. Einhver hugmynd hvað þetta gæti verið eða kannski ekki meðgöngu tengt? :( Með kveðju.
Heil og sæl, ég átta mig nú ekki á hvað þetta getur verið amk. ekki án þess að skoða þig. Mér heyrist á lýsingunni að þetta tengist ekki meðgöngunni beint þar sem engir samdrættir fylgja þessu. Mér þykir líklegt að þetta tengist þó stoðkerfinu og þeim breytingum sem verða á stöðu líkamans við meðgönguna. Hugsanlega má reyna að nudda svæðið eða nota hitapoka og/eða kælingu. Vona að þetta leysist. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.