Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
15. september 2018
Góðan daginn, Nú er ég gengin 10 vikur og hef verið með mjög takmarkaða matarlyst nýlega. Ég hef borðað mikið popp í pokum síðustu vikur og finnst það hjálpa við ógleðina. Ég veit ekki hvort popp í pokum innihaldi erðabreyttar maísbaunir en er eitthvað sem bendir til þess að mikil poppneysla sé skaðleg á meðgöngu? Ef poppið er erfðabreytt þ.e.a.s? Takk!
Heil og sæl, þér er óhætt að borða popp á meðgöngunni. Það eru engar leiðbeiningar sem segja til um að konur á meðgöngu eigi að forðast erfðabreytt matvæli. Líkast til hefur það ekki verið rannsakað. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.