Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
07. nóvember 2018
Góðan dag, nú er ég bara komin 18vikur og búin að vera að fá samdrætti frekar oft, er það alveg eðlilegt svona snemma? Er ekki að reyna neitt á mig á daginn þar sem ég er ekki að vinna. Þetta eru ekki sárir samdrættir og ekki endilega margir á klukkutíma, en finnst þeir samt furðu oft yfir daginn miðað við hvað ég er komin stutt. Fann ekki fyrir þeim fyrr en eftir 30.viku með eldra barnið. Kúlan semsagt bara harðnar og algjörlega verkja laust, smá óþægindi en engir verkir samt. Vildi bara ath hvort það sé algengt eða eðlilegt svona snemma á meðgöngu, og hvort það sé eitthvað að gera í þessu?
Heil og sæl, samdrættir af og til og án verkja eru eðlilegir á meðgöngunni. Það er misjafnt hvenær konur fara að finna fyrir þeim. Ég ráðlegg þér að segja ljósmóðurinni þinni í meðgönguvernd frá þessu. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.