Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
02. desember 2018
Komið þið sælar Ég er að velta fyrir mér hvort að það sé möguleiki á að ég geri verið ófrísk. Fyrsti dagur blæðinga var 24.okt2018 og ég hef Stundað kynlíf reglulega frá 14.november og ég átti að byrja á blæðingum þann 22.november en þær hafa ekki enþá látið sjá sig, ég tók próf dagin áður en ég átti að byrja en það kom neikvætt og núna seinustu 7 daga hef ég fundið fyrir aukinni þörf fyrir að pissa og varla búin á wc þegar að ég finn eins og ég þurfi að pissa aftur, einnig hef ég fundið fyrir aukinni þreytu og smávegis ógleði ekki það mikilli að ég þurfi að æla. Með bestu kveðju
Heil og sæl, ef þú ert með neikvætt þungunarpróf bendir það til þess að þú sért ekki ófrísk og ef svo væri þá værir þú það stutt komin að hæpið að nokkur einkenni væru farin að gera vart við sig. Aukin þörf til að pissa gæti bent til þess að þú værir með þvagfærasýkingu svo ég ráðlegg þér að hafa samband við þína heilsugæslustöð til að útiloka það. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.