Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
11. janúar 2019
Sælar og takk fyrir góðan vef. Ég er gengin um 11 vikur og var að taka eftir stórum skallablett efst í hvirflinum. Yfirleitt er nu talað um að konur fái fallegt og þykkt hár á meðgöngu. Bletturinn er fullkomlega hringlaga og hefur komið á innað við mánuði. Finst eins og þetta hljóti að tengjast meðgöngunni á einhvern hátt. Finn ekki miklar upplýsingar um þetta á íslenskum síðum, en hef þó séð að þetta er ekki einsdæmi hjá mér. Er þetta mikið áhyggjuefni?
Heil og sæl, þetta er þekkt en ekki mjög algengt. Ég ráðlegg þér að ræða málið við lækninn þinn. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.