Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
20. janúar 2019
Hæ. Ég er búin að vera taka Postafen við ógleðinni og hefur virkað ágætlega fyrir mig. Nú er ég komin rúmar 12 vikur og finn enn fyrir ógleði stundum, er í lagi að taka Postafen áfram núna þó ég sé komin lengra en 12 vikur? Takk fyrir!
Heil og sæl, almenna reglan er sú að taka ekki lyf nema að nauðsyn krefji. Ef að þú ert ennþá með það slæma ógleði að þú eigir erfitt með að þola hana þá er allt í lagi að taka postafenið. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.