Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
22. febrúar 2019
Sæl, Ég er komin 35 vikur núna með mitt annað barn. Ég er farin að muna svo mikið eftir hlutum sem gerðust þegar ég fæddi stelpuna mína. Svo strax eftir fæðingu þá gekk brjóstagjöfin svo hræðilega að það endaði með endalausa sýkingar á báðum geirvörtum, stálmi sem fór aldrei, blæddi mikið, mikill gröftur, endalausar stíflur. Var meira og minna á sýklalyfjum og verkjatöflum 6 vikur eftir fæðingu. Mér fannst ég ekki hafa neinn tíma til að komast yfir fæðinguna og hlutirnir urðu svo miklu verr þegar brjóstagjöfin byrjaði. Nú þegar styttist í næsta fæðingu og brjóstagjöf þá er ég að farast úr kvíða. Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að gera til að slaka á áður en ég fer af stað. Hvert leita ég til að fá einhverja ró? Eða hvernig er hægt að komast yfir svona mikin kvíða fyrir brjóstagjöf og fæðingu eftir svona slæma reynslu? Ég bað um að fá að sjá fæðingaskýrsluna mína í von um að það mundi róa mig eitthvað en ég er ekki viss. Bestu kveðjur, Ein mjög kvíðin
Heil og sæl, þú getur farið nokkrar leiðir. T.d. getur þú byrjað á að segja ljósmóðurinni þinni í meðgönguverndinni hvernig þér liður og sjá hvaða ráð hún hefur. Þú getur óskað eftir því að tala við brjóstagjafaráðgjafa fyrir fæðinguna en það þarftu að borga úr eigin vasa. Einnig ef þú hefur fætt á Landspítala þá er þar teymi sem kallast Ljáðu mér eyra og er fyrir konur með erfiða reynslu sem óska eftir viðtali. Þú getur hringt á kvennadeildina og óskað eftir tíma hjá þeim. Sú þjónusta hefur reynst mörgum konum vel. Þetta eru þær leiðir sem ég kem auga á fyrir þig í fljótu bragði. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.