Spurt og svarað

21. mars 2019

ólettuprof

Hæhæ.Takk fyrir æðislegan vef, hann aðstoðaði mikið á meðgöngunni. Ég á eina 4 mánaða skottu og er bæði með hana á brjósti og á brjóstapillunni. Nú lenti ég í því að fá ælupestina fyrir tæpum 3 vikum og hafði fyrir það stundað kynlíf og daginn eftir fengið egglosútferð. Í seinustu viku byrjaði ég að fá svipuð einkenni og þegar ég varð fyrst ólétt og tók próf í vikunni sem kom jákvætt og 2 önnur sem voru bæði neikvæð. Ég mun að sjálfsögðu leita til læknis til að fá staðfest svar en gæti ég verið ólétt þrátt fyrir neikvæð prof, að vera á pillunni og brjóstagjöf?

Heil og sæl, ég get alls ekki svarað þér með vissu en tvö neikvæð þungunarpróf gefa til kynna að þú sért sért líklega ekki ófrísk. Gangi þér vel. 

Senda fyrirspurn
Allir reitir verða að vera fylltir útSenda
Fyrirspurnin þín hefur verið send.
Fannstu ekki svar?

Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.

Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.

Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.