Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
04. nóvember 2019
Ég stundaði seinast kynlíf í miðjan júlí og byrja svo á blæðingum viku seinna og fór svo aftur á blæðingar í ágúst, september og svo í október fór ég á mjög litlar blæðingar og er ég komin framyfir núna. Ég tók þungunarpróf sem kom neikvætt. En málið er það að ég er búin að vera að finna fyrir einkennum seiustu vikurnar. Miðað við seinustu blæðingar fyrir seinasta kynlíf, þá ætti ég að vera komin 18v +4d, ætti þá ekki pottþétt að koma jákvætt á þungunarprófinu? Ef það skiptir einhverju máli þá er ég með einn 10 mánaða sem er reyndar ekki á brjósti
Heil og sæl, það er mjög ólíklegt að þú sért ófrísk miðað við neikvætt þungunarpróf og nokkuð reglulegar blæðingar og ekki kynlíf frá því í júlí. Þú ættir líka að vera farin að finna fyrir leginu rétt fyrir neðan nafla ef þú værir komin rúmlega 18 vikur. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.