Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
07. nóvember 2019
Hæhæ Ég semsagt er á pillunni en var að skipta yfir á aðra fyrir tveim manuðum. Fyrstu dagur síðustu blæðingar hjá mér var 21.10.19. Ég stundaði kynlíf án vörn seinustu daga blæðingar en þær hættu svo daginn eftir kynlífið og það voru nokkrir dagar í það að ég ætti að taka pilluna aftur, ég tók hana aftur 28.10.19 en stundaði kynlíf dagana áður en ég tók hana án varnar. Ég er með nokkur óléttu einkenni t.d búin að vera óglatt í sirka viku núna en ekki ælt, brjóstin á mér eru orðin þrutin en ekki aum, klæjar líka svoldið í þau. Er uppþaninn eins og ég sé að fara byrja á blæðingum. Skapið á mér jesús ég höndla ekkert.. ég veit ekki hvort ég sé að ímynda mér þetta en hvenær gæti ég tekið þungunarpróf ? Er í lagi að taka það núna eða þarf ég að bíða! Takk fyrir !
Heil og sæl, ekki vera að eyða peningum í þungunarpróf núna. Bíddu þangað til blæðingar láta á sér standa amk. Þó þú værir ófrísk núna værir þú komin svo stutt að einkenni eins og þú lýsir væru varla farin að gera vart við sig. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.