Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
21. nóvember 2019
Sæl. Ég var að fá jákvætt á þungunarprófi að ég held, línurnar voru ekki jafn dökkar en var samt skýr lína, í framhaldi hef ég svo margar spurningar í framhaldi. Hvert er best að leita ? Hvað er næsta skref ? Þetta er fyrsta barn.
Heil og sæl og til hamingju. Það er best fyrir þig að hringja í heilsugæslustöðina þína og fá viðtal við ljósmóður í síma. Þið getið svo lagt línurnar saman á því hvenær er heppilegt að koma í fyrsta viðtal. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.