Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
28. nóvember 2019
Hæhæ, Ef ég held að ég sé ný orðin ólétt, getur orkudrykkur haft slæm áhrif? Ekki að ég sé að þamba þá, tekur mig yfirleitt 5-7 tíma að klára einn 250ml Red Bull. Hvað annað getur maður gert ef maður er alltaf þreyttur út af lyfjum sem maður er að taka (og það eru engin önnur sem hægt er að skipta yfir á), þrátt fyrir góðan svefn.
Heil og sæl, almennt er ekki mælt með orkudrykkjum á meðgöngu, bæði vegna mikils koffíninnihalds margra drykkja og annarra efna sem eru í ýmsum þessara drykkja. Það eru ekki alltaf sömu efni í þessum drykkjum þannig að erfitt er að alhæfa en ef þú ætlar að neyta þeirra ráðlegg ég þér að lesa mjög vel á umbúðir og kanna hvort sé óhætt að drekka þá á meðgöngu. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.