Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
05. desember 2019
Sæl, við erum búin að vera að reyna að verða ólétt í 1,5 ár og hefur ekkert gengið. Við erum að taka inn öll vítamín sem við þurfum, borðum hollan mat, hreyfum okkur 3-5x í viku, stundum reglulega kynlíf og samkvæmt egglos prófum er ég að fá egglos. Við fórum í viðtal hjá Livio til að mæla öll gildin og sæðið en það kemur allt vel út úr þeim mælingum. Við höfum einnig verið að passa að fara ekki mikið í heita potta og svoleiðis. Er eitthvað hægt að gera, til þess að auka líkur á getnaði annað en að fara í smá/glasa frjógun?
Heil og sæl, mér sýnist þið vera að gera allt sem hægt er. Ég ráðlegg ykkur að hætta að hugsa um þetta í nokkra mánuði, vera bara afslöppuð og alls ekki vera að fylgjast með egglosi eða gera neitt til að auka líkur á frjóvgun, nema auðvitað stunda kynlíf. Það er allt í lagi að reyna þetta áður en að þið farið að leita annarra leiða. Ef þetta virkar ekki á ca. 6 mánuðum mundi ég ráðleggja ykkur að leita til læknis aftur. Gangi ykkur vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.