Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
06. desember 2019
Sælar Það eru 4 vikur síðan ég átti en síðan brjóstagjöfin komst af stað á þriðja degi hef ég algjörlega haft engan áhuga á mat eða á að borða. Reyni samt að borða þrisvar yfirdaginn. Gleymi því jafnvel nema ég stilli klukku til þess að minna mig á að borða fæ enga svengdartilfinningu. Getur brjóstagjöfin verið að valda þessu lystarleysi? Fyrir viku síðan ákvað ég svo að prufa að vikta mig bara til að sjá til gamans hvaða þyngd hefði fylgt barninu og sá til mikillar undrunar að ég hef misst rúmlega 17 kíló frá því ég átti og komin undir þá þyngd sem ég var fyrir þungun. Sem ég má alveg við þar sem ég var aðeins of þung en ég er samt að velta fyrir mér hvort og þá hvenær ég ætti að hafa áhyggjur af of miklu þyngdartapi. Er eitthvað viðmið varðandi það?
Heil og sæl, nei það eru engin sérstök viðmið, það fer svolítið eftir holdarfari einstaklings. Oftast gengur þetta yfir, þetta lystarleysi er ekki beint tengt brjóstgjöfinni heldur frekar kannski lífsbreytingunni sem þú ert að ganga í gegnum. Þú borðar samt og stillir klukku til þess og það er bara hið besta mál. Sjáðu bara til hvernig þetta þróast. Ef þetta gengur ekki yfir er tækifæri til að ræða málið í ungbarnaverndinni þegar þú ferð með barnið í 9 vikna skoðun. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.