Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
06. desember 2019
Ég er komin 19 vikur á leið og hef verið með mikla verki í lífbeininu síðan mjög snemma á meðgöngunni. Verkurinn er mestur hægra meginn og mér líður eins og ég verði að styðja við með höndunum þegar hann er sem verstur. En nú nýlega hef ég farið að taka eftir eins og bólgu yfir svæðinu hægra megin þegar ég fer í sturtu. Er það eðlilegt? Getur þetta verið kviðslit frekar en grindargliðnun?
Heil og sæl, nei þú átt ekki að vera bólgin yfir lífbeini. Ég ráðlegg þér að ræða málið annaðhvort við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni eða við lækninn þinn. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.