Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
28. janúar 2020
Ég er bara gengin rúmar 5 vikur á leið og fyrir nokkrum dögum helltist yfir mig rosalegt þunglyndi af engri ástæðu, hef aldrei verið þunglynd áður og meðgöngur alltaf gengið vel, er heimavinnandi með 3 yndisleg börn, stöndum vel fjárhagslega og félagslega en ég kemst ekki frammúr rúminu af þunglyndi, oft hníg eg bara niður þar sem ég stend og sit þar í allt að klukkutima að gera ekki neitt vegna yfirþyrmandi þunglyndis, samt er ekkert sem ætti að valda því! Það eru engar erfiðar hugsanir hjá mér, enginn kviði né áhyggjur.. ekkert að! Ég er bara orðin tóm og dofin í hausnum. Hvað get ég gert? Ég er alvarlega farin að pæla í fóstureyðingu bara til þess að losna við þetta þunglyndi, samt er þetta barn svo hjartanlega velkomið og þráð. Vona svo innilega að eg fái svar.
Heil og sæl, vonandi hverfur þetta eins snögglega og þetta kom en ég ráðlegg þér að panta strax tíma hjá lækninum þínum eða ljósmóður í meðgönguverndinni, sérstaklega ef það er einhver sem þú þekkir frá fyrri meðgöngum. Það er mikilvægt að láta andlega vanlíðan ekki ganga of langt og reyna að grípa í taumana sem fyrst. Endilega leitaðu þér hjálpar og þá er ýmislegt hægt að gera. Gangi þér vel.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.