Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
17. mars 2020
Hvað er eðlilegt að það séu miklar hreiðurblæðingar og í hversu langan tíma? Það kom smá í síðustu viku og svo aftur í gær og ég er komin 6+2 í dag.
Sæl, yfirleitt er hreiðurblæðing minniháttar blæðing sem gengur yfir á nokkrum dögum eða jafnvel einum degi. En heiðurblæðing á sér yfirleitt stað á 4. viku meðgöngu þegar fóstrið er að festa sig við legvegginn. Smávegis blæðing við 5-6 vikna meðgöngu án verkja er yfirleitt saklaus en ef þú hefur áhyggjur getur þú haft samband við ljósmóður á þinni heilsugæslu eða bókað tíma í snemmsónar hjá kvensjúkdómalækni.
Kær kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.