Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
02. apríl 2020
Hæ Er eðlilegt að vera með túrverki á viku 22 (og jafnvel seinna yfir meðgönguna) og gulleita frekar þykka útferð? Mig klæjar ekki, verkjar ekki bara vægir túrverkir, svíður ekki þegar ég pissa en hef verið með smá harðlífi.
Sæl, með þessi einkenni væri gott að útiloka sýkingu af hverju tagi, svo sem þvagfærasýkingu eða sveppasýkingu. Einkenni geta verið ódæmigerð á meðgöngu. Ég ráðlegg þér því að hafa samband við þína ljósmóður í heilsugæslu.
Kær kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.