Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
21. september 2020
Góðan daginn Eftir að ég átti fyrsta barnið mitt fyrir fjórum árum þá hefur kynlíflöngunin mín breyst rosalega mikið. Eignaðist seinna barnið snemma árs 2019. Í fyrri fæðingunni var ég klippt og ég var mjög lengi að jafna mig eftir hana.. átti erfitt með að stunda kynlíf sársaukalaust í alveg ár eftir hana. Seinni fæðingin var eins og draumur og ég var mikið fljótari að jafna mig. Var að vonast til að löngunin í kynlíf myndi breytast eftir seinna barnið en finn bara aldrei þessa sterku löngun sem ég hafði alltaf áður en ég eignaðist börnin, og mér þykir það mjög leiðinlegt. Þar sem að ég elska manninn minn mjög mikið og sambandið gengur mjög vel, en ég finn að maðurinn minn er farinn að halda að ég sé ekki eins hrifin af honum vegna þessa (sem er ekki raunin). Ég var með rosalega mikla kynorku áður en börnin fæddust, svo þetta er mikil breyting. Er að spá hvort eitthvað getur hafa gerst hormónalega? Eru til einhverjar töflur sem auka kynorku? Hef lesið rannsóknir sem sýna að kynorka kenna minnki með árunum.. en þar sem að ég er bara 26 ára þá finnst mér það heldur snemmt. Veit þar að auki getur aukið álag auðvitað breytt miklu eins og með þreytu og aukinni ábyrgð. Miklar vagnaveltur hjá mér. En mér þætti áhugavert að vita hvort það séu einhver vítamín eða eitthvað sem gæti allavegana ýtt undir kynlífslöngun? Kveðja
Sæl, algengt er að þreyta og álag tengt uppeldi barna minnki kynlífslöngun/kynorku. Í brjóstagjöfinni er styrkur estrógens lágur sem getur valdið þurrki í leggöngum og þar með óþægindum í kynlífi. En ólíklegt er að það hafi átt sér stað varanlegar hormónabreytingar hjá þér eftir barnsburð, þær eiga allar að jafna sig eftir að brjóstagjöf lýkur.
Ég veit ekki til þess að til séu töflur í lausasölu eða vítamín sem auka kynorku. Það sem ég mæli með er að reyna eins og þú getur að takmarka streitu og þreytu, t.d. með hreyfingu, yoga, hugleiðslu, nuddi eða öðrum leiðum, ásamt því að huga að nægum svefni. Jafnframt er mikilvægt að huga að sambandinu, sem á það til að sitja á hakanum hjá fólki með lítil börn. Regluleg stefnumót eða frítími fyrir ykkur sjálf getur hjálpað. Ef um þurrk í leggöngum eða sársauka við kynlíf er að ræða er mikilvægt að meðhöndla það.
Kær kveðja, Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.