Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
15. nóvember 2020
Sælar! Eg átti barn fyrir 16 vikum síðan en náði aðeins að hafa það á brjósti í um 7 vikur. Nú eru semsagt ca 9 vikur síðan það hefur verið einungis á pela og ekkert bólar enn á blæðingum hjá mér. Ég hef heyrt að brjóstagjöf getur seinkað því að þær byrji aftur en hélt þær myndu koma fljótt eftir hana. Mig langaði því að forvitnast hvað það getur tekið langan tíma fyrir blæðingar koma aftur og hvort ég þurfi nokkuð að hafa áhyggjur af þessu? Bestu kveðjur
SælRannsóknir sýna að konur sem eru ekki með barn sitt á brjósti byrja flestar á blæðingum innan þriggja mánaða frá fæðingu. Það er þó alveg eðlilegt þó að blæðingar séu ekki byrjaðar hjá þér, þær ættu að byrja fljótlega. Ef þú hefur áhyggjur af þungun geturðu tekið þungunarpróf. Mikilvægt er að nota getnaðarvarnir því ekki er öruggt hvenær fyrsta egglos verður.
Kær kveðja, Jóhanna María Friðriksdóttir, ljósmóðir
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.