Hæhæ Ég eignaðist barn fyrir tveim vikum og er búin að vera í vandræðum með brjóstagjöf. Ég byrjaði á að fá mikla stálma og sár á geirvörturnar og þegar hann lagaðist fékk ég mikinn hita. Eftir stálmana fékk ég sýkingu í brjóstin og fór í mjaltarvél og ljósmóðir losaði um stífluna, ég fékk þá líka sýklalyf. Núna er ég búin að vera í 5 daga á sýklalyfjum. Ég er með endalausar stíflur en sárin eru að gróa báðu megin. En þegar að barnið mitt sýgur finn ég svo óbærilegann sársauka, í upphafi og oft yfir alla gjöfina. Þessi sársauki er á geirvörtunni og mér svíður mikið í þeim eftir gjöf í dágóðann tíma. Ég hef fengið það staðfest frá 3 ljósmæðrum að barnið taki rétt og að það sé ekkert sem ég þurfi að breyta þar. Er eitthvað sem ég get gert og er þetta eðlilegt? Ég hita brjóstið alltaf fyrir gjafir.
Sæl
Leiðinlegt að heyra að þú hefur verið að takast á við sár, stíflur og sýkingu. Það getur tekið tíma að vinda ofan af svona vandamálum, en þetta virðist vera að skána hjá þér, þar sem sárin eru að gróa og þú ert á sýklalyfjum.
Það er mjög erfitt að ráðleggja með svona vandamál hér án þess að hafa betri uplýsingar.
Það er mikilvægt að barnið nái að taka brjóstin vel og tæma þannig úr mjólkurkirtlunum í öllu brjóstinu.
Þú talar ekki um hvort þessi sviði hafi verið áður en þú byrjaðir að taka sýklalyfin eða hvort þetta sé nýtt vandamál. Stundum getur svona sársauki og stingir inni í geirvörtunni sem leiða inn í brjóstið verið merki um sveppasýkingu. Einnig getur þetta verið enn að jafna sig ef sárin eru ekki alveg gróin. Þessi verkur ætti að fara að lagast eftir 5 daga skammt af sýklalyfjum ef sárin eru það sem eru að orsaka verkinn.
Í þínum sporum myndi ég leita mér aðstoðar brjóstagjafaráðgjafa til þess að ná að leiðrétta vandamálið. Konur eiga rétt á tveimur heimsóknum frá brjóstagjafaráðgjafa á fyrstu tveimur vikunum án endurgjalds. Eftir það þarf að greiða fyrir heimsóknina. Stundum er jafnvel hægt að ræða við brjóstagjafaráðgjafa í síma og ná að leysa úr vandamálinu.
Hér er listi yfir brjóstagjafaráðgjafa.
Gangi þér vel
Kær kveðja, Jóhanna María Friðriksdóttir, ljósmóðir